08febrúar
Eins og síðasta helgi var nú frábær, stillt og gott veður en ískalt. Þá virðist þessi næsta helgi bjóða uppá hita sem er um eða yfir frostmarki, storm og rigningu. Það verðu lítið um skíðaferðir þessa helgina og enn minna um sólböð.
Annars verða Lilja og Sæmi í bænum, aldrei að vita nema að þau kíki inn... Ef það verður rólegt þá er alltaf gaman að skoða það sem er boðið uppá hér:
http://visindavefur.hi.is/
07febrúar
Þegar ég vaknaði í morgun sá ég að það var kominn um 20 cm jafnfallinn snjór yfir allt. Það varð reyndar til þess að bílar voru fastir hér og þar, t.d. var allt fast fyrir utan Ingunnarskóla og Emilía Guðrún kom aðeins of seint.
Mér til mikillar furðu var ekki nein "stappa" á leiðinni í vinnuna en venjulega eru mikilar stíflur á Vesturlandsveginum og jafnvel í beygjunni inná Sæbraut líka. Kannski var fólk bara ekki vaknað. Af öllum dögum þá þurfti ég að taka bensín núna, því með þessum snjó er rok og fjúk/snjókoma.
06febrúar
Nú er það ómögulega að gerast, ég skráði mig inn á blogg. Svo er bara að sjá hvort eitthvað verður úr því hjá mér.