Aldrei of varlega farið!

Það var sem sagt farið í sjósund í dag. Þetta var mitt fyrsta skipti og dagurinn náttúrulega valinn með tilliti til þess. Sjórinn var sem sagt 1,8 gráður (ath komman á að vera) og hífandi rok.

Ég var alveg búinn að ákveða að fara útí og sá fljótlega að best væri að drífa í því. Þessvegna hoppaði ég fyrstur útí. Þegar þangað kom hafði ég ekkert sérstakt að gera, mér hálpartinn leiddist svo ég stökk bara uppúr aftur.

Þegar ég kom í vinnuna aftur var það mitt fyrsta verk að kaupa sundbolta svo ég myndi hafa eitthvað að gera næst þegar ég færi.

Segja aðeins frá því að þegar við komum að búningsaðstöðunni (líka á vefnum) voru viðvaranir sem voru á þessa leið:


03.12.2008
Aldrei of varlega farið!
Starfsfólk Nauthólsvíkur vill sérstaklega minna sjósundgesti á að fara varlega. Nú um stundir er sjórinn rétt um 2°C og því nokkuð varasamt að ætla sér mikið í sundinu.
Kær kveðja, starfsfólk Nauthólsvíkur.

 

03. desember 2008 klukkan 22:40
Jón Pétur Einarsson
Almennt

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Jón Pétur Einarsson
  • Staður: Reykjavík

ANDLITSBÆKUR

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...