Hversu gott er að vera ég

Það fer ekki á milli mála að nú eru miklar sviptingar í fjármála-, fyrirtækja-, starfs- og milliríkjaumhverfi. Bankar hverfa af yfirborðinu hver eftir annan eins og það sé ekkert sjálfsagðara. Gengi krónunnar okkar er í einhverskonar rússibanareið sem hefur reyndar meira farið niður en upp. Fyrirtæki standa höllum fæti og "vina"ríki eru farin að hóta hvert öðru. 

En gleymum því ekki að í svona sviptingum eru ALLTAF tækifæri! Munum það t.d. að margir efnuðust vel á einkavæðingu bankanna á sínum tíma. Hvernig væri að taka þátt í því þegar þeir verða einkavæddir aftur.... Lífið er yndislegt.

 

Nú er gagnslaust að velta vöngum yfir því sem þú ekki hefur.

Hugsaðu heldur um hvað gera má úr því sem fyrir hendi er.

( ERNEST HEMINGWAY )

08. október 2008 klukkan 21:41
Jón Pétur Einarsson
Almennt

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Jón Pétur Einarsson
  • Staður: Reykjavík

ANDLITSBÆKUR

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...