Enn af Samóamanninum

Kannski aðeins fyrst um Davíð. Eftir viðtal við hann í Kastljósinu í kvöld og þær breytingar sem orðið hafa í efnahagslífinu frá síðustu færslu frá mér tel ég að ég hafi farið full frjálslega með hans aðild að Glitnis-mánudags-málinu. Ég hef allavega engan áhuga á því að börnin mín og barnabörnin mín séu veðsett í topp af mönnum sem kunnu sér ekkert hóf í græðgi. Umhyggja mín og samúð liggur hjá börnunum mínum en ekki ofurkapitalistum sem lifa í sýndarveruleika. Davíð er besta skinn.

Að Samómanninum, hér lýsir hann því hvernig honum finnst að hvílast í húsum hvíta mannsin í Evrópu:

"Aldrei tókst mér að finna kofa í Evrópu þar sem ég gæti komið mér þægilega fyrir á teppinu, þar sem ekkert olli limum mínum óþægindum þegar ég teygði úr mér. Allir hlutir skutu eldingum eða æptu hástöfum með munni lita sinna svo að ég gat ekki lokað augunum. Aldrei gat ég fundið sannan frið og oft langaði mig heim í kofann minn á Samóa þar sem engir hlutir eru aðrir en teppin mín og svefnvöndullinn þar sem ekki kemur yfir mig annað en mild hafgolan."

Á vel við að enda með þessum orðum hans:

"Því sannari Evróðubúi sem maður er, þeim mun fleiri hluti þarf maður að eiga."

07. október 2008 klukkan 20:46
Jón Pétur Einarsson
Almennt

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Jón Pétur Einarsson
  • Stađur: Reykjavík

ANDLITSBĆKUR

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...